Lavrov: Þýskaland að hruni komið

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, gagnrýnir harðlega þá ákvörðun Þýskalands að leyfa árásir Úkraínumanna á rússneskt landsvæði með vestrænum langdrægum eldflaugum.

Segir Lavrov að þetta muni leiða til stigmögnunar Úkraínustríðsins. Samkvæmt Lavrov er Þýskaland að hruni komið – rétt eins og gerst hefur áður í sögunni.

Að sögn UNN sagði Lavrov samkvæmt rússneskum fjölmiðlum:

„Þýskaland rennur niður sömu brautina og landið hefur runnið niður áður í átt að hruni sínu.“

Yfirlýsingin kemur í kjölfar tilkynningar Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, um að búið sé að aflétta takmörkunum á hversu langt vestræn langdræg vopn geta náð inn í Rússland.

Þetta opnar leið fyrir úkraínska herinn að skjóta fyrir tilstuðlan Þjóðverja á hernaðarskotmörk langt inni í Rússlandi. Merz sagði í yfirlýsingu:

„Engar takmarkanir eru á hversu langt vopnin ná sem við erum að afhenda Úkraínu, hvorki frá Bretum, Frökkum, okkur né Bandaríkjamönnum.“

Fara efst á síðu
OSZAR »